Ásta Arnardóttir er jógakennari, leikkona og leiðsögukona að mennt. Hún hefur kennt jóga síðan 1999 og starfað sem leiðsögukona á hálendinu síðan 1991 og hefur frá árinu 1998 tekið virkan þátt í því að efla meðvitund um mikilvægi þess að vernda lífríki jarðar.
Ásta hefur kennt yoga síðan 1999 og stofnaði ásamt Auði Bjarnadóttur Lótus jógasetur 2002. Hún lauk yogakennaraprófi frá Kripalu Center for Yoga and Health 1999 og hefur sótt fræðlsu og iðkað yoga og hugleiðslu í Bandaríkjunum, Englandi og Indlandi. Ásta hefur stundað vipassana hugleiðslu m.a. á kyrrðarvökum (retreat) í Gaia House í Englandi og Spirit Rock Meditation Center í Bandaríkjunum. Kyrrðarvakan er í þögn.
Í mars 2005 og febrúar 2007 dvaldi Ásta á Ann Wigmore Health Institude í Puerto Rico á námskeiði í lifandi fæði og hreinsun líkamans.
Hún stofnaði til gönguferða um undraveröld Jöklu haustið 2002 í þeim tilgangi að vekja athygli á náttúruparadís í hættu vegna Kárahnjúkavirkjunnar. Sumarið 2003 stofnaði hún ásamt Ósk Vilhjálmsdóttur til leiðangra á vegum Augnabliks um undraveröld Jöklu og Kringilsárrana og fossaröð Jökulsár á Fljótsdal. Þær gengu í fjögur sumur með um þúsund manns um landið sem hvarf vegna Kárahnjúkavirkjunnar. Í öræfaferðum með Ástu er fléttað saman gönguferðum um hálendið og jóga úti í náttúrunni. Markmið ferðanna er að efla meðvitund um náttúruvernd og mikilvægi þess að vernda lífríki jarðar.
Hún hefur bakgrunn sem leikkona og leikstjóri og starfaði í 15 ár við leiklist og leiklistarkennslu. Hún hefur haldið fjöldamörg námskeið í jóga, leiklist og spuna m.a. í Kramhúsinu, Lótus jógasetri, Leiklistarháskólanum, Leiklistarskóla BÍL, Kennaraháskólanum og víðar.
Hún sat í stjórn Náttúruaverndarsamtaka Íslands 1999 – 2003 og Umhverfisnefnd Félags Leiðsögumanna 2000 – 2003. Hún sat í stjórn Jógakennarafélags Íslands 2005 - 2007 og var formaður félagsins árið 2006 – 2007. Ásta Arnardóttir var ásamt Ósk Vilhjálmsdóttur tilnefnd til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2009.