Auður Bjarnadóttir
jógakennari


MEÐGÖNGUJÓGA


Fjölmargar konur hafa staðfest að jóga ástundun á meðgöngunni bætir andlega og líkamlega heilsu og vellíðan. Jóga stuðlar að betri meðvitund og tengingu við líkamann, hugarástand og tilfinningar. Með rólegri athygli dýpkar innsæið og öryggi og sjálfstraust eflist. Í jóga gefur konan meðgöngunni, sjálfri sér og barninu sérstaka athygli og er hvött til að bera ábyrgð á eigin heilsu og vera virk og skapandi í fæðingunni.

Fæðing hverrar konu er einstök reynsla, ekki sjúkdómur, heldur eðlilegur hluti af náttúrunni og hverri konu eðlislæg. Þeim mun öruggari sem konan er þeim mun betur getur hún tekist á við fæðinguna og jafnvel notið hennar. Jóga styrkir og opnar líkamann, eykur mýkt og sveigjanleika, dregur úr verkjum, bætir líkamsstöðu, auðveldar djúpslökun og færir vellíðan.

Betri öndun eykur súrefnis-og blóðflæði og bætir þannig heilsuna og svefninn. Öndunin er leiðarljósið í jóga og með meðvitaðari öndun tengjum við huga og líkama, vitundina við æðri vitund og opnum glufu fyrir sálina.

Jóga minnir okkur stöðugt á að anda inn í hvert augnablik og umfaðma hvert andartak. Í jóga fyrir barnshafandi leitumst við við að skapa samfélag, spjöllum annað slagið, tökum bumbumyndir og fáum fæðingarsögur.

FÆÐINGASÖGUR (skoða hér)

Í LÓTUS erum við með þrjá hópa í meðgöngujóga.
Hver hópur mætir tvisvar í viku og svo er laugardagstíminn opinn tími fyrir alla hópana.

(hópur 1) mánudagar og miðvikudagar: kl. 12.10-13.25
(hópur 2) þriðjudagar og fimmtudagar: kl. 16.15-17.30
(hópur 3) þriðjudagar og fimmtudagar: kl.19.15-20.30

Laugardagar: kl.12:30 - 13:40 (opinn tími)

Allir tímar eru 75 mín. Flestar konur byrja í meðgöngujóga eftir 14 –16 viku meðgöngunnar og eru fram að fæðingu.
En það er aldrei of seint að byrja!

SKRÁNING:
Vinsamlegast veldu þér tíma sem passar best (Hópur 1, 2
eða 3). Þú getur byrjað um leið og pláss losnar. Biðlistar í meðgöngujóga geta farið upp í allt að 6-8 vikur. Þú verður svo látin vita um leið og þú kemst að.

Gott er að fá fullt nafn, síma, nr. á hóp og hvenær þú vilt helst byrja.

Skrá mig á námskeið:
audur@vortex.is

VERÐ Í MEÐGÖNGUJÓGA:

1 stakur mánuður 10.500
2 mánuðir saman 18.000
3 mánuðir saman 24.000 ( hægt að dreifa á léttgreiðslur).

REIKN: 0137-26-36505 KT: 650106-2880

KLÆÐNAÐUR:

Best er að vera berfættur og í fötum sem ekki þrengja að.
Dýnur, púðar og teppi á staðnum.

NB! Vinsamlegast mæta tímanlega, síðdegis og á laugardögum er húsinu lokað þegar tímarnir byrja.



PARAKVÖLD

VERÐ: Önnin 28.000 (má skipta á léttgreiðslur)
Einn mánuður 9.500


Skrá mig á námskeið: audur@vortex.is


SADHANA

Nú verður Sadhana/morgunástundun á hverjum FÖSTUDAGSMORGNI í Lótus kl. 5.30-8.00 (japji, jóga, slökun og möntrur)
Frítt- ALLIR VELKOMNIR!

"Your body is the temple of God, and your soul is the Divine Guru (kennari eða viska) within. So, you get up in the morning, meditate, chant the mantras, do the exercise, call on your spirit, regulate the breath, and you get together in group consciousness. In that way you help each other. Group consciousness in the morning Sadhana is to help each other" Yogi Bhajan

Aftur á kennarar

 

 

 
 

Lótus Jógasetur | Borgartún 20 | 4 hæð t. h.