Jóginn skynjar sjálfan sig
í sálu hverrar veru
og allar verur í sálu sinni
- Bhagavad Gita
Hómópatía
á meðgöngu og í fæðingu.
Fæðing
Fyrir ári síðan var ég viðstödd
fæðingu systursonar míns - bæði sem
hómópati og nuddari og sem vitni að þessu
kraftaverki sem ég gleymi seint. Fæðingin fór
rólega af stað og gekk frekar hægt enda strákurinn
stór og fyrsta barn móður sinnar. En hann
stakk sér inn í heiminn engu að síður
eftir langa mæðu, blár og krumpaður eftir
öll átökin, setti upp skeifu og reyndi að
segja okkur hvernig hann hefði það. Við sem
horfðum á öll þessi innri átök
mömmunnar, gátum lítið gert annað
en að hvetja hana til dáða meðan hún
rembdist og bjóða fram mjúkar hendur til að
sýna í verki löngun okkar til að taka
á okkur hluta af þjáningunni - sem var auðvitað
bara táknræn. Ég sá hvernig óttinn
við meiri sársauka hafði áhrif á
hraða fæðingarinnar og svo baráttugleðina
þegar hún fékk loksins að rembast og
núna þegar ég rifja þetta svona upp
þá sé ég líka fyrir mér
þennan dugnaðarfork sem hamaðist af öllum
kröftum að koma sér út úr þessum
þrönga gangi.
Líkaminn er alltaf að koma á jafnvægi
Það er alltaf jafn merkilegt að verða vitni
að því hvernig lífið hefur sinn
gang, sama hvernig við berjumst á móti. Og
þannig á það líka að vera.
Aukinn áhugi á heildrænni meðferð
og - hugsun sýnir einmitt að samfélagið
er að vakna til meðvitundar um þetta. Líkami
okkar er alltaf að vinna að því að
koma á jafnvægi og heilbrigðu ástandi.
Stundum þarf hann aðstoð við að ljúka
því verki. Lyf eru ekki alltaf eina svarið.
Þau geta einmitt bælt niður tilraunir náttúrunnar
til að hafa sinn gang. Þetta á kannski sérstaklega
við á meðgöngu, í fæðingu
og í meðferð ungbarna þar sem lyf geta
verið varasöm.
Hómópatía örvar eðlislæga
tilraun líkamans til að
lækna sig sjálfur
Hómópatía er meðferðarform sem
hjálpar til við að örva eðlislæga
tilhneigingu líkamans til að lækna sig sjálfur.
Hún er algerlega skaðlaus, veldur engum aukaverkunum
og er þess vegna mjög örugg aðferð til
að auka heilbrigði og bæði andlega og líkamlega
vellíðan móður og barns. Hómópatinn
horfir á manneskjuna í heild og veikindi eða
vanlíðan eru í hans augum merki um ójafnvægi
sem verður að skoða í samhengi við heildina.
Hómópatinn notast við efni úr jurta-,
steina- og dýraríki sem eru þynnt út
með ákveðnum aðferðum og það
er einmitt þessi mikla þynning sem gerir þau
svo skaðlaus. Hver og einn fær efni sem er sniðið
að hans eigin þörfum og einstaklingseðli
og tvær manneskjur með sama kvillann fá þannig
ekki endilega sama efnið eða "remedíuna".
Ef þú færð remedíu sem samsvarar
einkennum þínum í heild þá
hefur hún yfirleitt áhrif á heilsu þína
og vellíðan almennt. Þess vegna er líka
algengt að kona sem til dæmis kvartar undan morgunógleði
á meðgöngu, finni þegar hún fer
að taka hómópatíska remedíu
að það dregur ekki bara úr morgunógleðinni
heldur mörgu öðru sem amaði að henni og
henni fer hugsanlega almennt að líða betur í
sjálfri sér.
Hómópati og ljósmóðir
Ananda Zaren, hjúkrunarkona, ljósmóðir
og hómópati í Santa Barbara í Kaliforníu
hefur notað hómópatíu í hundruðum
fæðinga. Hún segir: "Vegna þess
hve hómópatískar remedíur eru öruggar
þá eru þær ómetanlegar á
meðgöngu, í fæðingu og eftir fæðingu.
Ekkert meðferðarform er öruggara. Hún segir
einnig að hómópatía, sé hún
rétt notuð í fæðingu, geti komið
í veg fyrir vandamál í fæðingu,
stytti fæðingartímann og auki sársaukaþröskuld
móðurinnar þannig að hún eigi auðveldara
með að umbera verkina.
Heilbrigðari börn Hómópatar hafa stundum sagt í
léttum tón að meðganga sé mjög
góður tími til að fá hómópatíska
meðferð þar sem tvær manneskjur (móðirin
og barnið) fái remedíu á verði
einnar.
Remedíurnar bæta ekki aðeins heilsu móðurinnar
heldur nýtast þær líka fóstrinu.
Þó að þessi þáttur hafi
ekki verið formlega rannsakaður ennþá,
þá hafa hómópatar tekið eftir
því að konur sem hafa fengið hómópatíska
meðferð á meðgöngu virðast fæða
heilbrigðari börn. Hómópatar hafa komist
að þessari niðurstöðu með því
að bera saman annars vegar börnin sem fengu hómópatíska
meðferð í móðurkviði og önnur
börn þessara sömu kvenna sem fengu hana ekki.
Hómópatar hafa líka talað um að
konur sem fá hómópatíska meðferð
áður en þær verða ófrískar
fái síður morgunógleði á
meðgöngu.
Meðgangan
Það er almennt vitað að heilsa móðurinnar
hefur bein áhrif á heilsu fóstursins. Þar
sem meðganga getur verið mikið álag fyrir
líkama konunnar finna ófrískar konur oft
meira fyrir ýmsum kvillum sem annars eru lítið
að trufla þær eða stundum ýmis ný
einkenni. Þetta getur verið ógleði, brjóstsviði,
loft í meltingarvegi, sýkingar í leggöngum,
blöðrubólga, frunsur, svefnleysi, blóðleysi,
bakverkir, eymsli í brjóstum, bjúgur, gyllinæð,
hægðatregða, sinadráttur, útbrot
á húð og æðahnútar. Sum þessi
einkenni eru lítils háttar og getur nægt
að gera breytingar á mataræði og lífsstíl.
Önnur getur þurft að meðhöndla og þar
sem konur þurfa að fara sérstaklega varlega
í lyfjanotkun á meðgöngu getur verið
þess virði að láta reyna á hómópatíuna.
Hómópatískar remedíur geta líka
komið að gagni við að koma í veg fyrir
slit á meðgöngu.
Það er yfirleitt mælt með því
að ófrískar konur leiti sér aðstoðar
hjá menntuðum hómópata frekar en að
meðhöndla sig sjálfar. Þar sem heilsa
þeirra hefur áhrif á tvo einstaklinga skiptir
máli að konan fái bestu hugsanlega meðferð
og reyndur hómópati getur best gefið hana.
En eins og áður sagði eru hómópatískar
remedíur hættulausar og ef ekki gefst kostur á
öðru er hægt að verða sér út
um góðar bækur og remedíurnar er margar
hægt að kaupa í Skipholtsapóteki, Heilsuhúsinu
og í Blómavali.
Dr. Imberechts, virtur belgískur læknir og hómópati
segir: "Hómópatískar remedíur
eru mjög gagnlegar við ýmsa fylgikvilla á
meðgöngu og sjúklingar mínir biðja
sjaldan um annað en hómópatíska meðferð."
Langvarandi og nýleg einkenni
Hómópatar gera greinarmun á akút
- eða "bráðaeinkennum" annars vegar
og hins vegar krónískum eða langvarandi einkennum.
Þau fyrrnefndu eru merki um tilraun líkamans til
að verja sig gegn nýtilkomnu álagi eða
sýkingu. Þau síðarnefndu lýsa
endurteknum, misheppnuðum tilraunum líkamans til
að koma aftur á heilbrigðu ástandi. Þessi
einkenni geta haldið áfram að sýna sig
vegna stöðugs álags eða endurtekinna sýkinga
eða vegna erfða, lífsstíls eða umhverfisáhrifa.
Stundum stafar það sem virðist vera bráðaeinkenni
í raun af undirliggjandi langvarandi ástandi.
Sepia, Pulsatilla og Nux Vomica
Til að gefa hugmynd um einstaklingsgreininguna í
hómópatískri meðferð ætla
ég að nefna sem dæmi remedíur sem eru
algengar að nota við ógleði á meðgöngu.
Eins og áður sagði eru engir tveir einstaklingar
eins og því koma mun fleiri en þrjár
remedíur til greina við morgunógleði en
til að einfalda málið nefni ég aðeins
þessar þrjár. Kona sem þarf remedíuna
Sepia, er auk ógleðinnar oft pirruð og afskiptalaus
gagnvart sínum nánustu. Ógleðin er
líkleg til að vera stöðug og verst milli
15 og 17. Konunni líður betur af að borða
en langar ekki í mat. Kona sem þarf Nux-vomica
er líka oft pirruð og með stöðuga ógleði
sem lagast við að kasta upp og versnar við það
að borða. Hún er verst á morgnanna og
er með eins og stein í maganum eftir máltíð.
Konu sem þarf Pulsatillu líður ekki betur af
því að kasta upp. Henni líður betur
í fersku lofti, þolir illa feitan, þungan
mat og er oft viðkvæm og lítil í sér.
Hómópatía í fæðingu
John George, M.D. fæðingar- og kvensjúkdómalæknir
í Seattle, notar hómópatískar remedíur
í starfi sínu. "Remedíurnar auðvelda
á margan hátt fæðinguna fyrir konuna
og lækninn. Rétt valin remedía gefin fyrir
fæðingu undirbýr leghálsinn með
þvi að mýkja og auðvelda, þynna og
víkka út leghálsinn áður en
fæðingin sjálf hefst. Hríðarnar
verða jafnari og markvissari. Verkir minnka og þar
af leiðandi er síður þörf á
deyfingu."
Algeng remedía að nota í fæðingu
er til dæmis Caulophyllum. Hún getur styrkt legvöðvana
og hjálpað við að koma fæðingunni
betur á veg. Hún var notuð í rannsókn
sem gerð var á svínum. 200 gyltum var gefið
Caulophyllum við upphaf burðar og fækkaði
afgerandi fjölda andvana grísa. Þessar gyltur
voru í svínahjörð þar sem var tiltölulega
algengt að grísirnir fæddust andvana. Í
fæðingunni sem ég sagði frá hér
að ofan notuðum við Pulsatillu til að koma fæðingunni
betur af stað og það hafði greinileg áhrif;
hríðarnar urðu markvissari og kraftmeiri. Að
sjálfsögðu eru ótal fleiri remedíur
sem koma til greina í fæðingu og eins og áður
virka þær best ef er valin remedía sem hentar
einstaklingnum.
Hómópatía fyrir nýbakaða
móður
Fæðing getur verið erfið fyrir líkamann.
Ef móðirin er útkeyrð eða ef hún
er með verki í vöðvum eftir áreynsluna
eins og af mari er Arnica oft það sem hún þarf.
Arnica er líka gefin almennt eftir högg eða
fall til að hjálpa líkamanum að jafna
sig eftir áfallið og flýtir fyrir að marið
komi út. Ef konan hefur rifnað eða verið
klippt í fæðingunni getur verið gott að
gefa henni Bellis perennis og eða Calendulu í formi
jurtatinktúru.
Svo tekur brjóstagjöfin við og einnig þá
geta hómópatískar remedíur reynst
ómetanlegar. Brjóstabólga er til dæmis
yfirleitt meðhöndluð með fúkkalyfjum.
Það getur sannarlega verið þess virði
að reyna aðra leið áður. Þrátt
fyrir að fúkkalyf geri sitt gagn þá
er gott að losna við allt sem þeim fylgir þar
sem barnið fær þau beint í brjóstamjólkinni.
Þess má geta að júgurbólgu í
kúm má líka meðhöndla á
sama hátt og losna þannig við allt það
tap sem fylgir því að aðskilja fúkkalyfjamjólkina
frá og henda henni. Ef mjólkin næst ekki
upp eða geirvörturnar verða aumar eru aðrar
remedíur sem koma til greina.
Fæðingarþunglyndi
Fæðingarþunglyndi getur komið upp hvenær
sem er á fyrsta árinu eftir fæðingu.
Og þrátt fyrir að það sé algengt
í mildara formi þá er alls ekki sjálfsagt
að sætta sig bara við það. Og annað
mikilvægt er að vera ekki með sjálfsásakanir.
Jafnvel þótt aðstæður séu
eins og best verður á kosið og barnið rólegt
þá eru meðganga og fæðing yfirleitt
alltaf töluvert álag fyrir konuna. Ef þunglyndi
er alvarlegt er mjög mikilvægt að leita til sérfræðinga
og þar getur hómópatía verið
mjög góð leið að auki til að meðhöndla
konuna heildrænt, hjálpa henni að byggja upp
orku og ná sér aftur líkamlega og andlega.
Mildari form af fæðingarþunglyndi svara líka
yfirleitt mjög vel í hómópatískri
meðferð. Algengar remedíur í fæðingarþunglyndi
eru; Cimicifuga, Nat-mur, Sepia, Ignatia, Pulsatilla. Til dæmis
er Cimicifuga gagnleg þegar konan er þunglynd bæði
af andlegum og hormónatengdum ástæðum.
Henni gæti liðið eins og það hangi svart
ský yfir lífi hennar og allt ómögulegt.
Hún getur verið kvíðin eða taugatrekkt
og talar mikið. Kona sem þarf Nat-mur er líklega
sorgmædd og viðkvæm og vill vera ein og fá
að gráta í friði. Þrátt fyrir
að vera sorgmædd þá bregst hún
illa við ef einhver reynir að hugga hana. Í fæðingarþunglyndi
er yfirleitt mikilvægt að skoða heildarmyndina,
bæði mataræði, svefn, hreyfingu og svo möguleika
konunnar til að fá meiri aðstoð ef á
þarf að halda.
Niðurlag
Hómópatía getur bæði verið
einföld og flókin í notkun - allt eftir því
hver forsaga einstaklingsins er og eftir þekkingu þess
sem beitir henni. Hún getur virkað hægt - þegar
líkaminn þarf langan tíma til að leiðrétta
ójafnvægið og hún getur virkað mjög
hratt - svo kraftaverki líkist. Hún getur komið
af stað mjög djúpstæðum breytingum,
án þess þó að grípa inn
í líkamsstarfssemina. Það er alltaf
líkaminn sjálfur sem ræður ferðinni.
Þessari grein er aðeins ætlað að gefa
einhverja innsýn í möguleika hómópatíunnar
á þessum mikilvæga tíma í lífinu
þegar nýr einstaklingur kemur í heiminn.
Til að gera efninu full skil þyrfti helst heila bók.
Ég hvet áhugasama til að lesa sér meira
til og kynna sér málið.