Jóginn skynjar sjálfan sig
í sálu hverrar veru
og allar verur í sálu sinni
- Bhagavad Gita
Hvað er hómópatía?
Vitur maður ætti að huga að
því að heilsan er æðsta blessun mannsins,
og læra hvernig hann getur með hugsun sinni haft gagn
af sjúkdómum sínum.
Hippocrates 460-400 B.C.
Örlagarík eyrnabólga
Þegar dóttir mín var hálfs árs
fékk hún í eyrun eins og svo mörg
börn hér á landi. Hún fékk
pensilínskammt í hverjum mánuði og
í hvert sinn leið mér eins og ég væri
að eitra fyrir henni en kunni engin önnur ráð.
Ég reyndi ýmislegt og sumt virkaði ágætlega
um tíma en á endanum fékk hún alltaf
aftur í eyrun.
Þegar hún var eins árs sá ég
auglýst námskeið í hómópatíu
og hvernig hún gæti m.a. hjálpað börnum
með eyrnabólgur. Ég skráði mig
á námskeiðið og komst fljótlega
að því að hómópatía
er heilsteypt vísindagrein sem byggir á einföldum
kenningum sem virka. Ég heillaðist af því
hvernig hómópatían fléttar allt
saman í eina heild en bútar okkur ekki niður
í marga hluta eins og vélar. Ekki skaðaði
heldur að sjá hversu fljótt dóttir
mín tók við sér með aðferðum
hómópatíunnar.
Árangurinn
Hómópatinn (smáskammtalæknirinn)
sem hélt námskeiðið er írskur og
heitir Declan Hammond. Ég fór til hans með
stelpuna mína sem hafði verið með þurran
hósta á nóttunni í tvær-þrjár
vikur. Hún var líka dálítið
lítil í sér og vildi helst hanga í
pilsfaldinum á mér eða sitja í fanginu
á mér. Árangurinn lét ekki á
sér standa. Nóttina eftir var hún hætt
að hósta. Og hún varð öll miklu léttari
og ánægðari með lífið næstu
daga. Öðlaðist nýtt sjálfstæði
og rölti af stað að skoða heiminn. Ég
fann mikinn mun á henni. Nokkrum vikum seinna fékk
hún þó aftur í eyrun. Ég hringdi
strax í Declan, sem var komin til Írlands og lýsti
einkennunum fyrir honum. Hann sagði mér hvað
ég ætti að gefa henni og ég útvegaði
mér það. Ég fékk lækninn
minn til að fylgjast með henni og fjórum dögum
síðar var hún orðin góð í
eyrunum og hefur ekki fengið í eyrun síðan.
Það væri auðvitað hægt að
halda því fram að hún hafi bara verið
vaxin upp úr eyrnabólgunum eins og mörg börn
gera um eins árs aldur. En síðan þá
hef ég séð tugi barna með krónískar
eyrnabólgur sem hafa jafnað sig á nokkrum
dögum eftir svona meðferð. Sum hafa lagast að
fullu eftir eina meðferð en flest þurfa þó
lengri tíma. Stundum getur verið erfitt að finna
hvað það er sem hentar hverju barni.
Margir erlendir læknar nota hómópatíu
Ég starfaði sem au-pair í Frakklandi fyrir
þrettán árum og tók þá
fljótlega eftir því að flestar mömmur
þekktu mun á Chamomillu og Pulsatillu og gátu
nýtt sér hómópatíu fyrir
börnin sín og nánustu ættingja. Þar
voru hómópatísk apótek mjög
víða og bækur á mörgum heimilum
sem hægt var að fletta upp í. Seinna komst
ég að því að þriðjungur
frakka notar hómópatískar remedíur
og 32% franskra lækna nota þær til lækninga.
Fimmti hver þýskur læknir beitir hómópatíu;
41% breskra lækna senda sjúklinga sína til
hómópata og 45 % hollenskra lækna telja
að hómópatía geri gagn.
Heildræn meðferð
Hómópatía er heildræn meðferð
þar sem markmiðið er að hvetja líkamann
til að lækna sig sjálfur. Líkaminn er
alltaf að gera kraftaverk; vinna á alls kyns bakteríum
og vírusum og finna jafnvægið í óstöðugum
heimi. Þegar við veikjumst eru sjúkdómseinkennin
þrátt fyrir allt sýnileg merki um tilraun
líkamans til að koma aftur á jafnvægi.
Ef við bælum þessi einkenni þá
erum við ekki að hjálpa líkamanum að
lækna sig heldur að vinna á móti honum.
Og þar að auki erum við að slökkva á
ljósinu í mælaborðinu - eina sýnilega
merkinu sem við höfum um að eitthvað sé
að. Þannig meðferð getur aldrei virkað
nema tímabundið. Með því að
vinna á móti heilbrigðu svari líkamans
erum við að draga úr orku hans í stað
þess að auka hana. Til að líkaminn geti
haldið heilbrigði sínu þarf hann fulla
orku.
Hvað er hómópatía?
Hómópatía byggir á einföldum
sannleika; kenningunni um að líkt lækni líkt.
Nútíma vestrænar lækningar byggja
að mestu leyti á því að lækna
með andstæðum. Það hefur verið vitað
í mörg þúsund ár að hægt
er að fara þessar tvær leiðir og til dæmis
virðast Egyptar hafa stundað lækningaaðferðir
sem byggja á líkum grunni. Margir kokkar þekkja
gamalt húsráð sem felst í því
að sá sem brennir sig setur hendina aftur inn í
eldinn. Í stað þess að kæla hana
- sem myndi vera að lækna með andstæðum.
Ég hef sjálf sannreynt þetta. Eftir að
hafa brennt mig á ofninum, setti ég fingurinn
eins nálægt hitanum og ég komst og hélt
henni þar eins lengi og ég gat. Sviðatilfinningin
hvarf eftir stutta stund og engin blaðra kom.
Kaffi sem meðal
Annað dæmi um að lækna líkt með
líku eru áhrifin af kaffi. Ef við drekkum
of mikið kaffi spennumst við upp og getum orðið
andvaka. En kaffi eins og öll önnur efni getur læknað
sömu einkenni og það veldur. Remedían
Coffea sem er búin til úr kaffi er þannig
m.a. notuð við svefnleysi. Hún er líka
notuð við ,,of mikilli gleði." Skammtur af
remedíunni Coffea myndi t.d. geta hjálpað
barni, sem hefur farið í þrjú afmæli
sama daginn og getur ekki náð sér niður,
til að finna aftur jafnvægi og róa sig niður.
Smáskammtar
Eitt helsta aðalsmerki hómópatíunnar
er að hún er hættulaus og henni fylgja engar
aukaverkanir. Þetta stafar af því að
efnin sem notuð eru - bæði úr jurta, dýra
og steinaríki eru mjög útþynnt. Það
er gert með því að þynna og hrista
lausnina eftir ákveðnum reglum. Þrátt
fyrir að lausnin verði svo mikið útþynnt
að ekkert mælist af efninu í henni þá
hefur það sýnt sig að remedían sem
eftir stendur hefur samt sem áður áhrif. Til
að gera þetta enn mótsagnakenndara þá
hefur hún sterkari áhrif eftir því
sem þynningin er meiri. Þessu eiga margir erfitt
með að kyngja. En það er svo margt í
þessum heimi sem við getum ekki útskýrt.
Hvernig fer hákarlinn t.d. að því að
finna lykt af einum blóðdropa af löngu færi
í hafinu? Hómópatía virkar og það
eru til fjöldi rannsókna sem birst hafa í
vísindatímaritum víða um heim sem sýna
fram á virkni hennar.
Laukur við kvefi
Ein af þeim hómópatísku remedíum
sem notaðar eru við kvefi og sömuleiðis við
ofnæmisviðbrögðum er búin til úr
lauk og heitir Allium Cepa. Allir vita hvaða áhrif
það hefur að skera lauk. Það fer að
renna úr augum og nefi - alveg eins og þegar við
fáum kvef. En Allium Cepa dugar ekki alltaf á
kvef þó það leki úr nefi og augum.
Aðeins ef önnur einkenni Allium Cepa eru til staðar.
Og þetta gildir um allar remedíur. Hver remedía
eða efni hefur sín auðkenni, sum mjög óvenjuleg
og einkenna kannski aðeins þetta eina efni. En þetta
er einmitt það sem gerir hómópatíuna
bæði spennandi og oft erfiða. Það getur
verið mjög vandasamt að greina á milli og
finna þá remedíu sem hentar fyrir hvern
og einn.
Viðkvæma blómið
Ég nefndi hér að ofan remedíurnar Chamillu
og Pulsatillu. Til að gefa skýrari mynd af því
hvernig hómópatinn vinnur ætla ég
að nota þær sem dæmi. Hægt er að
líkja hverri remedíu við mynd af manneskju.
Dóttir mín fékk einmitt Pulsatillu við
hóstanum sínum og barn sem þarf Pulsatillu
er eins og ég lýsti henni; lítið í
sér, dálítið grátgjarnt, sækir
í fang foreldra sinna og vill ekki vera eitt. Pulsatilla
er ein algengasta remedían við ýmsum algengum
kvillum eins og kvefi, hósta, eyrnabólgum og niðurgangi.
Hún er líka mjög oft notuð fyrir ófrískar
konur, í fæðingu og fyrir unglingsstúlkur
- þegar hormónin geta farið að sveifla
okkur í skapinu. Annað sem einkennir m.a. þann
sem þarf þessa remedíu er að hann finnur
lítið fyrir þorsta, þolir illa hita og
líður best úti í fersku lofti, þungur
og feitur matur fer ekki vel í hann.
Reiðikast
Chamilla er líka algeng remedía við t.d. eyrnabólgum,
tanntöku barna og sársauka í fæðingu.
En myndin er allt öðru vísi. Þarna er
manneskja sem er í reiðikasti af því
hún finnur mikið til. Hún er ofurnæm
fyrir sársaukanum og öskrar jafnvel af öllum
kröftum. Barnið biður um mjólk og hendir
svo glasinu í gólfið. Það vill ekki
láta hugga sig eða kjassa en gæti liðið
skár ef það er borið um gólf frekar
harkalega. Tími dagsins skiptir líka máli.
Versti tíminn dagsins fyrir barn sem þarf Chamillu
er klukkan níu að morgni og níu að kvöldi.
Ef barnið þarf Pulsatillu er versti tíminn
við sólarupprás og sólarlag. Chamilla
og Pulsatilla eru tvær remedíur sem eru báðar
mjög algengar við eyrnabólgum. En börnin
með eyrnabólguna eru gjörólík.
Grunngerðin
Börn og fullorðnir eru auk þess með ákveðna
grunngerð. Hún lýsir þeirra skapeinkennum
og líkamsgerð. Þessi grunngerð samsvarar
ákveðinni remedíu og með því
að gefa barninu hana þá er hægt að
styrkja það og fyrirbyggja veikindi. Til að átta
sig á henni getur verið ágætt að
leita til hómópata. Ef þú þekkir
grunngerð barnsins þíns geturðu lesið
þér til og lært að skilja betur veikleika
þess og hvernig það getur veikst. Þessi
grunngerð segir til um hvernig okkur er eðlilegt að
bregðast við lífinu. Ef við verðum fyrir
áfalli sem við eigum erfitt með að vinna
úr þá færumst við aðeins frá
okkur sjálfum - frá grunngerð okkar. Vinna
hómópatans er því stundum eins og
að flysja lauk og komast nær kjarnanum.
Ekki nein endanleg töfralausn
Ég vil alls ekki gefa þá mynd að hómópatía
sé endanleg töfralausn á öllum okkar
meinsemdum. Meðal við öllu. Það er eins
og segir hér að ofan oft erfitt að finna út
hvað hver og einn þarf. Það getur t.d. verið
erfitt að greina börn því ung börn
geta ekki sagt okkur hvernig þeim líður. Við
getum bara reynt að lesa úr hegðun þeirra
og það sem við sjáum af einkennum. En á
móti kemur að börn svara yfirleitt mjög
fljótt meðferð ef remedían hittir í
mark og því er fljótt hægt að
sjá hvort eitthvað breytist. Ef hún hins vegar
gerir það ekki þá gerist ekki neitt.
Þá getur reynt á þolinmæðina
meðan verið er að finna út úr því
hvað barnið þarf.
Foreldrar geta sjálfir lært að beita hómópatíu
Hómópatía hefur reynst mörgu foreldrinu
ómetanleg hjálp. Hún getur verið mjög
fljótvirk við mörgum kvillum sem koma upp. Kvillum
eins og magakveisu hjá ungbörnum, erfiðri tanntöku
, útbrotum, meiðslum og barnasjúkdómum
eins og mislingum. Hún getur dregið úr verkjum
og óþægindum og flýtt fyrir bata.
Í þessum tilfellum geta foreldrarnir sjálfir
lært að styðja barnið í veikindunum.
Með því að beita hómópatíu
er líka hægt að veita barninu aukinn styrk,
svo það geti sjálft unnið betur á
veikindunum og komið í veg fyrir að vandinn verði
viðvarandi. Þá er betra að leita til hómópata
sem hefur lært fagið. Hómópatía
hefur líka reynst vel fyrir ofvirk börn, börn
með astma, ofnæmi, exem, mígreni, blöðrubólgu,
börn sem pissa undir, afbrýðissemi milli systkina
og til að hjálpa barni gegnum sorg t.d. við skilnað
foreldra svo eitthvað sé nefnt.
Læknir læknaðu sjálfan þig
Margir foreldrar hafa áhyggjur af aukaverkunum lyfja
á börn sín og sífellt fleiri leita
annarra leiða. Framtíðin hlýtur að
vera að hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar
geti starfað saman og bætt upp það sem á
vantar hjá hvorri fyrir sig. Áður fyrr voru
lækningar heimilisins mikið í höndum kvenna.
Með sérhæfingu nútímans höfum
við dálítið misst kjarkinn við að
treysta eigin innsæi. Þetta er að breytast og
við erum farin að taka meiri ábyrgð á
heilsu okkar.
Í hómópatíu er það ekki
remedían sem læknar heldur líkaminn. Mér
fannst það mjög heillandi þegar ég
kynntist hómópatíunni að geta gert
eitthvað sjálf til að hjálpa dóttur
minni ef hún veiktist. Og að hafa í höndunum
verkfæri sem er svona hættulaust og aðgengilegt.
Það eru til ótal bækur sem hægt
er að styðjast við ef foreldrar vilja reyna fyrir
sér og kynnast hvernig hómópatía
virkar. Þannig getum við sjálf haft áhrif
á heilsu barnanna okkar, boðið þeim upp
á styrkjandi valkost (og bragðgóðan að
auki) og um leið lært að þekkja þau
betur. Svo er um að gera að hvetja heimilislækninn
til að kynna sér málið.