Jóginn skynjar sjálfan sig
í sálu hverrar veru
og allar verur í sálu sinni
- Bhagavad Gita
KUNDALINI JÓGA
Kundalini jóga eins og nemendur Yogi Bhajans
ástunda það samanstendur af æfingum eða
stöðum (asana), með ákveðinni öndun
(pranayama) handa- og fingrastöðum (mudra), líkamslokum
(bandha), tónun (mantra) og íhugun (meditation),
saman eða í ákveðinni röð til
að skapa nákvæmlega ákveðin áhrif.
Þessi vísindi hafa verið kennd í klaustrum
á Indlandi og í Tíbet í þúsundir
ára og ef við iðkum þau nákvæmlega
eins og meistarinn kennir þau, getum við náð
áhrifum sem eru ekki bara mjög eflandi og öflug
heldur líka fullkomlega fyrirsjáanleg.
„Kriya“
er æfing eða sería af æfingum sem hafa
í heild sinni meiri áhrif en samanlagðir hlutar
hennar. Settin eða æfingaseríurnar sem Yogi
Bajan kenndi eru „kriyur“ frekar en bara röð
af æfingum. Margar af þessum „kriyum“
eru virðulegar og ævafornar og hafa verið kenndar
munnlega frá kennara til nemanda og eru þess vegna
helgar og leyndar. Yogi Bhajan gerði þessar æfingar
aðgengilegar almenningi með þeim orðum að
viska tilheyri öllum.
Kundalini jóga hentar mjög vel venjulegu fólki
sem lifir venjulegu lífi. Með því að
ástunda kundalini jóga getum við styrkt taugakerfið,
innkirtlakerfið og ónæmiskerfið og komið
jafnvægi á líkama, huga og anda. Við
getum orðið sveigjanleg og styrkt vöðvana.
Jóga eykur andlega orku og gefur okkur innri frið
og innri styrk til að mæta því sem lífið
ber í skauti sér. Jóga þýðir
sameining. Við getum nýtt okkur það til
að finna fyrir óendanleika okkar og sigra daginn.
Mánudagar og miðvikudagar kl. 07:00 - 08:15
Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 17:45 - 19:00
Laugardagur kl.10:00 - 11:15 (kripalu jóga)