Jóginn skynjar sjálfan sig
í sálu hverrar veru
og allar verur í sálu sinni - Bhagavad Gita
Streita rænir þér frá
sjálfum þér
Streita er algengasta dánarorsökin
á Vesturlöndum, samkvæmt niðurstöðu
fjölda rannsókna þar sem hún er meginorsök
hjartaáfalls og stuðlar að mörgum öðrum
sjúkdómum þar á meðal ofnotkun
eiturlyfja. Þreyta og streita eru sögð vera algengustu
vandamálin sem hrjá okkar heimshluta. Önnur
vandamál eru oft afleiðing þeirra; eins og
þunglyndi, kvíði, offita, svefnleysi og einbeitingarskortur.
Algengasta leiðin til að takast á við streitu
er að meðhöndla einkennin með því
að taka inn róandi lyf, drekka áfengi, reykja,
borða of mikið eða horfa á sjónvarpið.
Í framhaldinu þurfum við að fá örvun,
eins og kaffi eða sykur til að bæta upp orkumissinn
eða til að vekja okkur upp af dvalanum. Þetta
er eins og að keyra með annan fótinn á
bensíninu og hinn á bremsunni, ef við líkjum
vélinni við hjartað og nýrnahetturnar.
Við erum meira en hugur og líkami
Önnur leið til að höndla streitu er að
leita til sálfræðinga og ráðgjafa,
stundum lærir fólk að slaka á og breyta
um lífsstíl. Þessháttar leiðir
eiga vissulega rétt á sér og geta fleytt
okkur langt en það sem enn vantar upp á er
að líta á manneskjuna sem heild, finna innra
með okkur hvað liggur undir streituviðbrögðum
og taka með í reikninginn að við erum meira
en líkami og hugur.
Ef við ætlum að læra að lifa með
öllu því áreiti sem nútímasamfélag
innifelur og halda viti og heilsu er mikilvægt að
læra að takast á við streitu. Við höfum
tilhneigingu til að loka augunum fyrir því
sem við finnum og flýja veruleikann. Samfélagið
býður okkur endalausa möguleika á að
flýja okkur sjálf. Auk þess höfum við
tilhneigingu til að nálgast heiminn vitrænt,
með huganum en meirihlutinn af okkur sjálfum verður
eftir fyrir utan. Við þurfum að innlima andlega
þáttinn í okkur sjálfum og upplifa
heiminn meira innanfrá í stað þess að
loka okkur inni í huganum. Þegar við viðurkennum
og upplifum óendanleikann innra með okkur sjálfum,
við getum kallað það Guðsneistann eða
uppsprettuna innra með okkur, þá höfum
við lykilinn að innra friði og hamingju.
Kundalini jóga
Kundalini jóga er aldagömul tegund af jóga
og býður upp á mjög virkar leiðir
til að takast á við streitu og álag nútímans.
Það er hannað fyrir venjulegt fjölskyldufólk
sem lifir erilssömu lífi og hefur ekki of mikinn
tíma aflögu né eirð í sér
til að setjast niður mitt í öllu álaginu
og slaka á eða hugleiða tilgang lífsins.
Mikið af því jóga sem er í boði
er upphaflega sniðið að þörfum þeirra
völdu að helga líf sitt andlegri iðkun,
æfingar sem hjálpuðu þeim að sitja
lengur í hugleiðslu. Kundalini jóga er byggt
upp á æfingum sem hjálpa okkur markvisst
að örva innkirtlakerfið, lyfta orkunni okkar svo
við náum að finna þessa innri gleði
sem er okkur eiginleg og að takast á við líf
okkar af æðruleysi og innri styrk. Það er
bæði byggt upp á líkamlegum æfingum
sem koma okkur í gott líkamlegt form, öndunaræfingum
sem hreinsa, auka orkuflæðið og tengja okkur betur
við okkur sjálf. Kundalini hugleiðsla er aðgengileg
fyrir alla, líka þá sem eru ekki vanir að
hugleiða. Og það byggir á æfingum
sem koma jafnvægi á heilahvelin og á orkustöðvarnar.
"Streita rænir þér
frá sjálfum þér", segir Yogi
Bhajan sem færði Vesturlandabúum kundalini
jóga.
Fólk sem lifir undir miklu álagi þarf vissulega
að þjálfa líkamann og halda honum í
góðu formi, það getur til dæmis fyrirbyggt
vöðvabólgu og byggt upp almennt úthald.
En það er ekki nóg að koma sér í
gott form ef það bitnar á heildinni. Taugakerfið,
nýrnahetturnar, ónæmiskerfið eru þegar
undir álagi ef við búum við streitu. Við
þurfum líka að hugsa um að hlaða batteríin
og næra andann. Ef við hugsum um heildina þá
skilar það sér í auknum afköstum
og betri líðan.
Algerlega samstillt slökun læknar líkamann
Kundalini jóga kennir okkur leiðir til að vekja
kraftinn innra með okkur og auka meðvitund okkar um
þá ávana sem við höfum tamið
okkur. Hver tími byggir á seríu af æfingum,
sem kallast kría og hafa ákveðið markmið
eins og að koma jafnvægi á lifrina eða
meltinguna, bæta svefninn eða byggja upp styrk. Hver
kría hefur líka áhrif á heildina
og þess vegna erum við endurnærð og í
jafnvægi á eftir.
Kundalini er vitund okkar. Hún liggur í dvala
í öllum manneskjum og undir ákveðnum
kringumstæðum vaknar hún. Þegar það
gerist vöknum við og þekkjum okkar sanna sjálf.
Það er reynsla sem ekki er hægt að lýsa,
og hver og einn upplifir hana á sinn hátt.
Yogi Bhajan sem áður var nefndur hefur líka
sagt; "Algerlega samstillt slökun læknar líkamann."
Til þess að svo megi verða þarf samvinnu
milli allra þriggja þáttanna í okkur
sjálfum; líkama, hugar og sálar."
Okkur er ekki kennt það í skólum. Við
verðum sjálf að sækja okkur þá
þekkingu. Andinn er sterkari en líkaminn, ef við
ræktum hann.